Veftré Print page English

Íslensku leiklistarverðlaunin árið 2010:

 
Sýning ársins
Leiksýningin Jesús litli eftir Benedikt Erlingsson, Berg Þór Ingólfsson, Halldóru Geirharðsdóttur, Kristjönu Stefánsdóttur og Snorra Frey Hilmarsson í sviðssetningu Leikfélags Reykjavíkur. Leikstjórn annaðist Benedikt Erlingsson.
 
Leikskáld ársins
Benedikt Erlingsson, Bergur Þór Ingólfsson, Halldóra Geirharðsdóttir, Kristjana Stefánsdóttir og Snorri Freyr Hilmarsson fyrir leikverkið Jesús litli í sviðssetningu Leikfélags Reykjavíkur í Borgarleikhúsinu.
 
Leikstjóri ársins
Hilmir Snær Guðnason fyrir leikstjórn í leiksýningunni Fjölskyldunni - ágúst í Osaga-sýslu í sviðssetningu Leikfélags Reykjavíkur í Borgarleikhúsinu.
 
Leikari ársins í aðalhlutverki
Ingvar E. Sigurðsson fyrir hlutverk sitt í leiksýningunni Íslandsklukkunni í sviðssetningu Þjóðleikhússins.
 
Leikkona ársins í aðalhlutverki
Margrét Helga Jóhannsdóttir fyrir hlutverk sitt í leiksýningunni Fjölskyldunni - ágúst í Osaga-sýslu í sviðssetningu Leikfélags Reykjavíkur í Borgarleikhúsinu.
 
Leikari ársins í aukahlutverki
Björn Thors fyrir hlutverk sitt í leiksýningunni Íslandsklukkunni í sviðssetningu Þjóðleikhússins.
 
Leikkona ársins í aukahlutverki
Kristbjörg Kjeld fyrir hlutverk sitt í leiksýningunni Hænuungunum í sviðssetningu Þjóðleikhússins.
 
Leikmynd ársins
Börkur Jónsson fyrir leikmynd í leiksýningunni Fjölskyldunni - ágúst í Osaga-sýslu í sviðssetningu Leikfélags Reykjavíkur í Borgarleikhúsinu.
 
Búningur ársins
Helga Björnsson fyrir búninga í leiksýningunni Íslandsklukkunni í sviðssetningu Þjóðleikhússins.
 
Lýsing ársins
Björn Bergsteinn Guðmundsson fyrir lýsingu í leiksýningunni Fjölskyldunni - ágúst í Osaga-sýslu í sviðssetningu Leikfélags Reykjavíkur í Borgarleikhúsinu.
 
Tónlist ársins
Eiríkur Stephensen og Hjörleifur Hjartarson fyrir tónlist í leiksýningunni Íslandsklukkunni í sviðssetningu Þjóðleikhússins.

Hljóðmynd ársins
Walid Breidi fyrir hljóðmynd í leiksýningunni Völvu í sviðssetningu Pálínu frá Grund og Þjóðleikhússins.
 
Söngvari ársins
Ágúst Ólafsson fyrir hlutverk sitt í óperunni Ástardrykknum í sviðssetningu Íslensku óperunnar.
 
Dansari ársins
Steinunn Ketilsdóttir fyrir hlutverk sitt í danssýningunni Superhero í sviðssetningu Reykjavík Dance Festival og Steinunn and Brian.
 
Danshöfundur ársins
Steinunn Ketilsdóttir fyrir kóreógrafíu í danssýningunni Superhero í sviðssetningu Reykjavík Dance Festival og Steinunn and Brian.
 
Barnasýning ársins
Leiksýningin Horn á höfði eftir Berg Þór Ingólfsson og Guðmund S. Brynjólfsson í sviðssetningu GRALS - Grindvíska atvinnuleikhússins. Leikstjórn annaðist Bergur Þór Ingólfsson.
 
Útvarpsverk ársins
Útvarpsleikritið Einfarar eftir Hrafnhildi Hagalín. Hljóðsetning Einar Sigurðsson. Leikstjórn annaðist Hrafnhildur Hagalín.
 
Heiðursverðlaun Leiklistarsambands Íslands
Leikarinn Árni Tryggvason fyrir framúrskarandi ævistarf í þágu leiklistar.

Áhorfendaverðlaunin - sýning ársins að mati áhorfenda
Leiksýningin 39 þrep í sviðssetningu Leikfélags Akureyrar.