Veftré Print page English

Umhyggja, félag til stuðnings langveikum börnum

 

Merki Umhyggju, félags til stuðnings langveikum börnumFélagið Umhyggja var stofnað árið 1980 en upphafið að stofnun þess má rekja til þess að fagfólk í heilbrigðisgeiranum taldi að börn sýndu alvarleg streitueinkenni við sjúkrahúsinnlagnir. Fyrsta verk félagsins var að stuðla að því að foreldrar fengju að vera hjá börnum sínum þegar þau væru lögð inn á sjúkrahús.


Fyrstu árin var Umhyggja nær eingöngu félag fagfólks en árið 1995 varð félagið að þverfaglegum regnhlífarsamtökum. Um leið fengu foreldrar sæti í stjórn ásamt fagfólki. Aðildarfélög Umhyggju eru nú 18 talsins.


Umhyggja hefur efnt til samstarfs við við þrenn önnur hagsmunasamtök langveikra og fatlaðra barna. Þar er um að ræða AD/HD samtökin, Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra og Þroskahjálp. Þessi fjögur félög hafa sameinast um stofnun Sjónarhóls sem er ráðgjafar- og upplýsingamiðstöð fyrir fjölskyldur barna með sérþarfir. Félögin eru nú öll undir sama þaki á Háaleitisbraut 13.


Umhyggja er aðili að NOBAB, Nordisk forening for syke barns behov, og einnig að EACH, sem eru evrópsk samtök um réttindi barna inni á sjúkrahúsum.


Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson er verndari Umhyggju.


Vefur Umhyggju, félags til stuðnings langveikum börnum