Veftré Print page English

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands

ÍSÍ
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ) var stofnað 28. janúar 1912 undir heiti Íþróttasambands Íslands. Við sameiningu Íþróttasambands Íslands og Ólympíunefndar Íslands árið 1997 breyttist nafnið í Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands. ÍSÍ er stærsta fjöldahreyfing á Íslandi. 

 

Samkvæmt lögum frá Alþingi er ÍSÍ æðsti aðili um frjálsa íþróttastarfsemi í landinu. Sambandið er byggt upp af 25 sérsamböndum, 27 héraðssamböndum/íþróttabandalögum og um 450 íþrótta- og ungmennafélögum og 400 deildum þeirra, eða samtals um 1000 sambandsaðilum. Öll íþrótta- og ungmennafélög á Íslandi eru aðilar að ÍSÍ.  

 

Starfsemi ÍSÍ er afar fjölbreytt á landsvísu. Sambandið heldur m.a. úti öflugu fræðslu- og gæðastarfi í hreyfingunni ásamt því að hafa umsjón með afreksstefnu og afreksstarfi innan íþróttanna og sinna framkvæmd og umsýslu lyfjaeftirlits. Starfsemi ÍSÍ skiptist í þrjú svið: afreksíþróttasvið, fræðslusvið og almenningsíþróttasvið.  

 

Höfuðstöðvar íþróttahreyfingarinnar eru í Laugardal í Reykjavík. Forseti ÍSÍ er Lárus Rafn Blöndal og framkvæmdastjóri er Líney Rut Halldórsdóttir. 

 

Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands er verndari ÍSÍ. 

 

Vefsvæði Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands