Slysavarnafélagið Landsbjörg
Slysavarnafélagið Landsbjörg var formlega stofnað 2. október 1999 þegar Slysavarnafélag Íslands og Landsbjörg, landssamband björgunarsveita, voru sameinuð undir einu merki. Félagið á hins vegar rætur sínar að rekja allt aftur til fullveldisársins 1918 þegar fyrsta björgunarsveitin var stofnuð í Vestmannaeyjum.
Við stofnun Slysavarnafélagsins Landsbjargar urðu til ein stærstu samtök sjálfboðaliða á Íslandi með um 18 þúsund félögum sem starfa í björgunarsveitum, slysavarna- og unglingadeildum, alls 242 félagseiningum sem starfa um landið allt.
Tíð sjóslys og miklir mannskaðar af völdum þeirra mörkuðu upphafið að starfi Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Margar af björgunarsveitum félagsins við sjávarsíðuna eru sérhæfðar til leitar og björgunar á sjó og við strendur landsins. Hátt á annað hundrað björgunarbátar af öllum stærðum og gerðum eru til taks, búnir þrautseigum og vel þjálfuðum áhöfnum.
Öflugt fræðslu- og útgáfustarf einkennir starf Slysavarnafélagsins Landsbjargar ásamt átaksverkefnum af ýmsum toga. Slysavarnaskóli sjómanna hefur verið starfandi innan félagsins frá árinu 1985 og er öllum sjómönnum skylt að sækja námskeið á hans vegum. Þá hefur námskeiðshald fyrir almenning og fyrirtæki verið ört vaxandi þáttur í starfi skólans á undanförnum árum. Innan unglingadeilda félagsins hefur mikill fjöldi unglinga fundið athafnaþrá sinni farveg til heilbrigðra, spennandi og uppbyggilegra starfa.
Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson er verndari Slysavarnafélagsins Landsbjargar.
Vefur Slysavarnafélagsins Landsbjargar