Kvenfélagasamband Íslands
Kvenfélagasamband Íslands (KÍ) var stofnað hinn 1. febrúar 1930 og var hugsunin að baki stofnun sambandsins að sameina öll kvenfélög landsins í eina heild. KÍ skiptist nú í 21 héraðs- og svæðasamband sem í eru 218 kvenfélög. Innan vébanda félaganna eru nú á annan tug þúsunda kvenna.
Markmið KÍ eru einkum þessi:
- Að standa vörð um hag og heilsu íslenskra heimila.
- Fylgjast með opinberum ákvörðunum í uppeldis- og fræðslumálum, heilbrigðis- og tryggingamálum, skatta-, atvinnu- og launamálum.
- Taka afstöðu til jafnréttis-, mannréttinda-, ræktunar- og umhverfismála.
- Vinna að neytendamálum með starfrækslu Leiðbeiningastöðvar heimilanna.
- Stuðla að aukinni samvinnu kvenna, efla félagsvitund þeirra og vinna að málum sem félagsheildin ákveður hverju sinni.
- Sameina og samræma starfsemi aðila landssambandsins.
- Vinna að fræðslustarfsemi með útgáfu, fundum, ráðstefnum og námskeiðum.
- Hafa umsjón með framkvæmd ýmissa mála sem Alþingi og ríkisstjórn fela sambandinu.
- Vinna að stefnumálum Norrænu kvennasamtakanna og Alþjóðasambands húsmæðra svo sem kostur er hverju sinni.
KÍ er aðili að ýmsum nefndum, ráðum og stjórnum sem snerta hag fjölskyldna og þar með fólksins í landinu. Má þar nefna:
- Jafnréttisráð Íslands
- Öldrunarráð Íslands
- Kvennasögusafn
- Landvernd
- Þjóðbúningaráð
- Félagsheimilasjóð
KÍ er aðili að Norrænu kvennasamtökunum (Nordens Kvinneforbund NKF) og Alþjóðasambandi húsmæðra (Associated Country Women of the World ACWW).
Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson er verndari Kvenfélagasambands Íslands.
Vefsíða Kvenfélagasambands Íslands