Veftré Print page English

HEIÐURSMERKI FÁLKAORÐUNNAR

Eftirtaldir einstaklingar voru sæmdir heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu á árinu 2011:

 

I. Íslenskir ríkisborgarar

1. janúar 2011

Ágústa Þorkelsdóttir bóndi, Refsstað Vopnafirði, riddarakross fyrir störf í þágu dreifbýlis og heimabyggðar.
Björgvin Halldórsson tónlistarmaður, Hafnarfirði, riddarakross fyrir framlag til íslenskrar tónlistar.
Bryndís Halla Gylfadóttir sellóleikari, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til íslenskrar tónlistar.
Dóra Guðbjört Jónsdóttir gullsmiður, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til þjóðlegrar gull- og silfursmíði.
Jón Karl Karlsson fyrrverandi formaður Verkamannafélagsins Fram og Alþýðusambands Norðurlands, Sauðárkróki, riddarakross fyrir störf í þágu verkalýðsmála og réttindabaráttu.
Jóna Valgerður Kristjánsdóttir fyrrverandi sveitarstjóri, oddviti og alþingismaður, Reykhólahreppi, riddarakross fyrir framlag til félagsmála á landsbyggðinni.
Karl M. Guðmundsson fv. íþróttakennari og fræðslustjóri ÍSÍ, Reykjavík, riddarakross fyrir störf að æskulýðs- og íþróttamálum.
María Jóna Hreinsdóttir ljósmóðir, Reykjavík, riddarakross fyrir brautryðjendastörf í þágu fósturgreiningar og ljósmóðurfræða.
Pétur Gunnarsson rithöfundur, Reykjavík, riddarakross fyrir ritstörf og framlag til íslenskra bókmennta.
Ragnar Guðni Axelsson ljósmyndari, Kópavogi, riddarakross fyrir framlag til ljósmyndunar og umfjöllun um lífshætti frumbyggja á norðurslóðum.
Rannveig Löve fyrrverandi kennari, Kópavogi, riddarakross fyrir brautryðjandastarf á sviði lestrarkennslu og störf að málefnum berklasjúklinga.
Sigurgeir Guðmundsson formaður Slysavarnarfélagsins Landsbjargar, Hellu, riddarakross fyrir forystu á sviði björgunar og almannavarna.

 

16. júní 2011

Dr. Andrés Arnalds fagmálastjóri Landgræðslu ríkisins, Mosfellsbæ, riddarakross fyrir störf á vettvangi landgræðslu og jarðvegsverndar.
Hafdís Árnadóttir kennari og stofnandi Kramhússins, Reykjavík, riddarakross fyrir frumkvæði á sviði heilsueflingar og líkamsræktar.
Hólmfríður Gísladóttir kennari, Reykjavík, riddarakross fyrir brautryðjandastörf í þágu flóttafólks og aðfluttra íbúa.
Júlía Guðný Hreinsdóttir fagstjóri á Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra, Reykjavík, riddarakross fyrir störf í þágu íslensks táknmáls og réttindabaráttu.
Kári Jónasson fyrrverandi fréttastjóri, Reykjavík, riddarakross fyrir störf á vettvangi fjölmiðla.
Lovísa Christiansen framkvæmdastjóri Krýsuvíkursamtakanna, Hafnarfirði, riddarakross fyrir störf í þágu áfengis- og vímuefnaneytenda.
Sjöfn Ingólfsdóttir fyrrverandi formaður Starfsmannafélags Reykjavíkur, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til félagsmála og réttindabaráttu launafólks.
Skúli Alexandersson fyrrverandi alþingismaður og oddviti, Hellissandi, riddarakross fyrir störf í þágu atvinnulífs, menningar og sögu heimabyggðar.
Sverrir Bergmann Bergsson taugalæknir, Garðabæ, riddarakross fyrir störf í þágu MS-sjúklinga og á vettvangi heilbrigðismála og læknavísinda.
Þorsteinn Vilhjálmsson prófessor, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til vísinda, kennslu og miðlunar fræðilegrar þekkingar til almennings.
Þóra Einarsdóttir söngkona, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til íslenskrar tónlistar.

 

 

II. Erlendir ríkisborgarar

3. maí 2011

Danilo Türk, forseti Slóveníu, stórkross.

 

25. ágúst 2011

Dr. Dalia Grybauskaite, forseti Litháens, stórkross.

 

1. október 2011

S. Swaminathan, sendiherra Indlands á Íslandi, stórriddarakross með stjörnu.

 

15. október 2011

Caroline Dumas, sendiherra Frakklands á Íslandi, stórriddarakross með stjörnu.