Janúar |
01.01.2001 |
Nýársávarp forseta Íslands. Ensk þýðing
|
01.01.2001 |
14 Íslendingar sæmdir hinni íslensku fálkaorðu á Bessastöðum. Fréttatilkynning
|
01.01.2001 |
Nýársmóttaka forseta Íslands
|
03.01.2001 |
Jólatrésfagnaður á Bessastöðum |
05.02.2001 |
Fundur með Ólafi Egilssyni sendiherra
|
05.01.2001 |
Móttaka í Höfða í boði borgarstjóra vegna loka menningarborgarárs í Reykjavík
|
11.01.2001 |
Forseti afhendir markaðsverðlaun ÍMARK
|
11.01.2001 |
Fundur með Walter J. Hickel, fyrrverandi ríkisstjóra Alaska og innanríkisráðherra Bandaríkjanna, ásamt sendinefnd frá Alaska
|
16.01.2001 |
Fundur með Guðmundi Ólafssyni fornleifafræðingi
|
18.01.2001 |
Forseti afhendir Nýsköpunarverðlaun námsmanna á Bessastöðum
|
25.01.2001 |
Fundur með Ólafi Ólafssyni, fyrrverandi landlækni
|
25.01.2001 |
Fundur með Zacharias Wang frá Færeyjum
|
27.01.2001 |
Opnun ljósmyndasýningar Blaðaljósmyndarafélags Íslands og Ljósmyndarafélags Íslands í Gerðarsafni. Ávarp
|
Febrúar |
01.02.2001 |
Forseti Íslands afhendir Íslensku bókmenntaverðlaunin á Bessastöðum
|
05.02.2001 |
Séra Gunnar Kristjánsson prófastur vísiterar Bessastaðakirkju
|
05.02.2001 |
Fundur með Indriða Þorlákssyni ríkisskattstjóra
|
12.02.2001 |
Fundur forseta með Alan Landry (Winston-reykingamanninum) og Þorgrími Þráinssyni á Bessastöðum
|
12.02.2001 |
Sendiherra Bretlands, John Culver, afhendir trúnaðarbréf
|
13.02.2001 |
Fundur með Helga Seljan, Karli Helgasyni framkvæmdastjóra Æskunnar og Elínu Jóhannsdóttur ritstjóra Æskunnar
|
13.02.2001 |
Hópur kvenna úr Sinawik-hreyfingunni koma til Bessastaða
|
14.02.2001 |
Menntaskólanemendur frá Brussel hitta forseta á Bessastöðum
|
16.02.2001 |
Hópur frá Norður-Dakóta undir forystu Curtis Olafson kemur til Bessastaða
|
19.02.2001 |
Fundur með dr. Josph E. Stiglitz hagfræðingi á Bessastöðum
|
23.02.2001 |
Fulltrúar á ráðstefnu leikskólastjóra á Íslandi koma til Bessastaða
|
24.02.2001 |
Ávarp forseta á opnum fundi Umhyggju í Háskólabíói
|
24.02.2001 |
Körfuknattleikssamband Íslands 40 ára. Hátíðarsamkoma í Félagsheimili Kópavogs. Kveðja forseta í afmælisriti KKÍ
|
25.02.2001 |
Barnakór frá Vestmannaeyjum syngur í Bessastaðakirkju og heilsar upp á forseta í Bessastaðastofu
|
26.02.2001 |
Morgunverðarfundur hjá Krabbameinsfélaginu. Kynning á starfsemi félagins
|
28.02.2001 |
Fundur með Karvel Pálmasyni
|
Mars |
01.03.2001 |
Fundur með konum frá Serbíu, Kósóvó og Króatíu ásamt Val Ingimundarsyni sagnfræðingi á Bessastöðum
|
01.03.2001 |
Viðtal við forseta á Stöð 2 vegna landssöfnunar Krabbameinsfélagsins
|
02.03.2001 |
Fulltrúar Lionshreyfingarinnar afhenda forseta rauðu fjöðrina í Þjóðmenningarhúsinu
|
03.03.2001 |
Söfnun Krabbameinsfélagsins. Heimsókn á söfnunarstaði í safnaðarheimili Neskirkju og í Austurbæjarskólanum
|
03.03.2001 |
Viðtal við forseta í RÚV sjónvarpi
|
06.03.2001 |
Setning Búnaðarþings á Hótel Sögu
|
06.03.2001 |
Félagar í Klúbbi matreiðslumeistara koma til Bessastaða
|
12.03.2001 |
Fundur með Þórarni Tyrfingssyni lækni
|
13.03.2001 |
Forseti afhendir verðlaunin í upplestrarkeppni grunnskóla Hafnarfjarðar og Álftanesskóla í Hafnarborg
|
20.03.2001 |
Sendiherrar erlendra ríkja afhenda trúnaðarbréf á Bessastöðum: sendiherra Saudi Arabíu, hr. Badr Ibn Othman Bakhsh, sendiherra Tyrklands, hr. Berhan Ekinci sendiherra Íran, hr. Hossein Noghrekhkar Shirazi
|
21.03.2001 |
Viðtal við forseta á vegum Big Media Group frá Belgíu
|
21.03.2001 |
Fundur með Stanislaw Czartoryski, sendiherra Póllands
|
21.03.2002 |
Fundur með Eric og Gail Einarson McCleery frá Kanada
|
23.03.2001 |
Hátíðarkvöldverður á Bessastöðum til heiðurs ríkisstjórn og erlendum sendiherrum með aðsetur í Reykjavík
|
24.03.2001 |
Forseti flytur ávarp á þjóðahátíð Vestfirðinga á Ísafirði
|
26.03.2001 |
Erlendir AFS nemendur hitta forseta á Bessastöðum
|
28.03.2001 |
Unglingar á unglingageðdeild Landspítala hitta forseta á Bessastöðum
|
28.03.2001 |
Hópur erlendra háskólakennara og nemenda hittir forseta á Bessastöðum
|
29.03.2001 |
Fundur með Þorsteini I. Sigfússyni prófessor og gestum frá Kaliforníu
|
29.03.2001 |
Hádegisverðarfundur með Hjálmari W. Hannessyni sendiherra
|
30.03.2001 |
Fundur með Gunnari Erni Kristjánssyni, forstjóra SÍF
|
30.03.2001 |
Hátíðarkvöldverður á Bessastöðum fyrir embættismenn
|
31.03.2001 |
Heimsókn félaga úr Menningar- og listafélaginu Dægradvöl í Bessastaðahreppi á Bessastaði
|
Apríl |
04.04.2001 |
Sanjeeb Chowdhury blaðamaður frá Bangladesh tekur viðtal við forseta
|
05.04.2001 |
Fundur með Steingrími Hermannssyni, fyrrverandi forsætisráðherra og bankastjóra Seðlabankans
|
06.04.2001 |
Ávarp forseta við opnun myndlistarsýningar Carnegie í Gerðasafni.
|
09.04.2001 |
Afhending hvatningarverðlauna RANNÍS á Hótel Loftleiðum
|
10.04.2001 |
Fundur með Árna Johnsen alþingismanni
|
11.04.2001 |
Fundur með Kornelíusi Sigmundssyni sendiherra
|
15.04.2001 |
Hátíðarmessa í Hallgrímskirkju við lok Kristnihátíðar, Ávarp
|
18.04.2001 |
Fundur með sendiherra Ástralíu á Bessastöðum ásamt Ferguson, þingsmanni Verkamannaflokksins og talsmanni flokksins í varnarmálum
|
18.04.2001 |
Forseti afhendir Útflutningsverðlaun forseta Íslands á Bessastöðum. Fréttatilkynning
|
19.04.2001 |
Sumardagurinn fyrsti. Skátamessa í Hallgrímskirkju
|
21.04.2001 |
Afhending Forsetamerkis dróttskáta í Bessastaðakirkju og móttaka í Bessastaðastofu
|
21.04.2001 |
Oddfellowkonur úr stúkunni Steinunni í Reykjanesbæ koma til Bessastaða
|
23.04.2001 |
Hádegisverðarfundur með Sighvati Björgvinssyni
|
23.04.2001 |
Fundur með Rajapaksa, sjávarútvegsráðherra Sri Lanka
|
25.04.2001 |
Börn úr Álftanesskóla koma til Bessastaða
|
25.04.2001 |
Nemendur úr Fjölbrautaskóla Suðurnesja koma til Bessastaða
|
25.04.2001 |
Forseti afhendir Umhverfisverðlaunin í Ráðhúsinu
|
26.04.2001 |
Harry Teague, sjö ára kanadískur drengur með hvítblæði, hittir forseta á Bessastöðum ásamt foreldrum sínum
|
27.04.2001 |
Börn úr Örlygshafnarskóla í Vesturbyggð koma til Bessastaða
|
27.04.2001 |
Fundur með Hildi Jónsdóttur á Bessastöðum
|
28.04.2001 |
Forseta veitt viðurkenning Lionshreyfingar í Grafarvogskirkju. Ávarp
|
28.04.2001 |
Konur úr Oddfellowstúkunni Þorgerði koma til Bessastaða
|
28.04.2001 |
Hljómsveitin Buena Vista frá Kúbu og íslenskir tónlistarmenn koma til Bessastaða
|
30.04.2001 |
Fundur með Ivar Hansen, forseta danska þingsins
|
Maí |
03.05.2001 |
Börn úr Grundarskóla koma til Bessastaða
|
05.05.2001 |
Róðrarkeppni um Bessastaðabikarinn
|
08.-10.05.2001 |
Forseti í Manchester og Lundúnum
|
08.05.2001 |
Fundur með Hugh Barrett, borgarstjóra Manchester. Heimsókn í bókasafn Manchester háskóla. Móttaka Þorsteins Pálssonar sendiherra í Manchester. Hátíðarkvöldverður rektors háskólans í Manchester
|
09.05.2001 |
Forseti Íslands sæmdur heiðursdoktorsnafnbót við háskólann í Manchester. Ávarp . Kvöldverður David Wilson, ræðismanns Íslands í Manchester, til heiðurs forseta Íslands
|
10.05.2001 |
Fjárfestastefna á Savoy hótelinu í Lundúnum skipulögð af Útflutningsráði Íslands. Fundarstjóri Þorsteinn Pálsson sendiherra. Ávarp forseta og þátttaka í umræðum
|
11.05.2001 |
Forseti á sýningu San Francisco ballettsins í París í boði Helga Tómassonar
|
15.05.2001 |
Sendiherrar erlendra ríkja afhenda trúnaðarbréf á Bessastöðum: sendiherra Ástralíu, hr. Malcolm Ashley Leader sendiherra Portúgal, hr. Manuel António Pacheco Jorge Barreiros, sendiherra Brasilíu, hr. Luiz Antonio Jardim Gagliardi
|
16.05.2001 |
Sendiherra Japans, hr. Masao Kawai, afhendir trúnaðarbréf á Bessastöðum
|
17.05.2001 |
Fundur með Sören Langvad forstjóra
|
17.05.2001 |
Fundur með Ásmundi Jónssyni, framkvæmdastjóra Smekkleysu
|
18.05.2001 |
Fundur með Tero Mustonen frá háskólanum í Tampere
|
18.05.2001 |
Þjóðminjavörður, Borgarminjavörður og framkvæmdaaðilar við uppgröft fornminja í Aðalstræti kynna sér fornminjakjallara á Bessastöðum undir leiðsögn Guðmundar Ólafssonar fornleifafræðings
|
18.05.2001 |
Guðfinna Eydal afhendir forseta fyrsta eintakið af bók sinni um tvíbura
|
19.05.2001 |
Fundur með Aril Edvardsen, stofnanda og stjórnanda Filadelfiu
|
19.05.2001 |
Fulltrúar á ráðstefnu Þroskaþjálfafélags Íslands koma til Bessastaða. Ávarp
|
21.05.2001 |
Sendiherra Þýskalands, Reinhart Ehni, sæmdur stórkrossi hinnar íslensku fálkaorðu
|
21.05.2001 |
Forseti heiðursgestur í hádegisverði á Hótel Óðinsvéum vegna tilnefningar veitingastaðarins í Condé Nast Traveller
|
22.05.2001 |
Nemendur úr Hrafnagilsskóla í Eyjafirði hitta forseta á Bessastöðum
|
23.05.2001 |
Hádegisverðarfundur á Bessastöðum með Mart Laar, forsætisráðherra Eistlands
|
23.05.2001 |
35 fjölmiðlamenn frá helstu fjölmiðlum Frakklands, sem eru á vegum Icelandair hitta forseta á Bessastöðum
|
24.05.2001 |
Setning kirkjulistahátíðar í Hallgrímskirkju
|
25.05.2001 |
Forseti leggur hornstein að Vatnsfellsvirkjun
|
26.05.2001 |
Hverfishátíð í Vesturbæ. Forseti heimsækir dagvist aldraðra að Aflagranda 40. Ekið um hverfið. Dagskrá á KR-vellinum
|
26.05.2001 |
Fundur á Bessastöðum með Sir Peter Hall, Stefáni Ólafssyni, Trausta Valssyni ásamt fulltrúum úr stjórn Borgarfræðaseturs
|
28.-29.05.2001 |
Opinber heimsókn í Suður Múlasýslu Dagskrá
|
28.05.2001 |
Inger L. Jónsdóttir, sveitarstjórar Breiðdals-, Stöðvar- og Búðahrepps ásamt Friðmari Gunnarssyni, oddvita Fáskrúðsfjarðarhrepps, taka á móti forseta og fylgdarliði. Smári Geirsson formaður Héraðsnefndar Múlasýslna flytur ávarp. Á Fáskrúðsfirði heimsækir forseti grunnskólann þar sem nemendur skólans og leikskóla staðarins taka á móti með söng og skemmtun, Forseti fær morgunkaffi með vistmönnum á Hjúkrunar- og dvalarheimili aldraðra. Loðnubræðslan heimsótt, spjallað við starfsfólk og komið við á frönsku ljósmyndasýningunni í Templaranum. Á Stöðvarfirði tekur hreppsnefnd Stöðvarhrepps á móti forseta. Þar heimsækir hann SMS-fjarvinnsluna, Gallerí Snærós, gömlu sóknarkirkjuna á Stöðvarfirði, sem nú er gistiheimili, og steinasafn Petru. Á Breiðdalsvík tekur hreppsnefnd á móti forseta í Dagvist aldraðra í Hrauntíni. Um kvöldið er fjölskylduhátíð í íþróttahúsinu á Stöðvarfirði þar sem sr. Gunnlaugur Stefánsson flytur ræðu, nemendur úr tónlistarskólum flytja tónlist, kórsöngur og forseti ávarpar samkomuna. Forseti afhendir Hvatningu til ungra Íslendinga
|
29.05.2001 |
Á Breiðdalsvík heimsækir forseti grunnskólann, formaður nemendaráðs ávarpar forseta, tónlistarflutningur og nýja íþróttahúsið skoðað. Útgerðarfélag Breiðdælinga heimsótt og spjallað við starfsfólk. Morgunstund í Heydalakirkju. Hreppsnefnd Djúpavogshrepps tekur á móti forseta í Berunesi en síðan er haldið í Berufjörð þar sem forseti skoðar Nönnusafn. Komið við á Teigarhorni við Djúpavog þar sem er mikið safn geislasteina. Á Djúpavogi heimsækir forseti leikskólann og grunnskólann og skoðar sýningu á verkefnum nemenda, söngskemmtun og spjallað við nemendur. Farið að framkvæmdasvæði Sala Islandica og kynnt fyrirhugað fiskeldi. Heimsókn í fiskverkun Búlandstinds. Í Löngubúð skoðar forseti Ríkarðssafnið og hittir eldri borgara á dvalarheimilinu Helgafelli. Síðdegis er siglt út í Papey, fuglalífið skoðað. Um kvöldið er fjölskylduhátíð á Hótel Framtíð, Kristján Ingimarsson hreppsnefndarmaður og Ragnhildur Steingrímsdóttir oddviti ávarpa samkomuna, Vísnavinir flytja tónlist, forseti Íslands ávarpar gesti og afhendir Hvatningu til ungra Íslendinga
|
30.05.2001 |
Helgi Tómasson og frú í kvöldverð á Bessastöðum
|
31.05.2001 |
Harley Jonasson, formaður Íslendingadagsins í Gimli, og Svavar Gestsson sendiherra koma til fundar við forseta á Bessastöðum
|
31.05.2001 |
Hjúkrunarfólk frá Iowafylki í Bandaríkjunum á vegum Háskóla Íslands hittir forseta á Bessastöðum
|
Júní |
05.06.2001 |
Fundur með sendiherra Póllands
|
05.06.2001 |
Kennarar við Fjölbrautaskóla Vesturlands koma til Bessastaða
|
08.06.2001 |
Fundur með sendiherra Kanada
|
08.05.2001 |
Félagar í Skólastjórafélagi Vestfjarða hitta forseta á Bessastöðum
|
09.06.2001 |
Forseti flytur ávarp við skólaslit í Háskólanum í Reykjavík
|
09.06.2001 |
Kvöldverður á Bessastöðum til heiðurs Adrienne Clarkson, landstjóra Kanada, sem er í einkaheimsókn á Íslandi
|
10.06.2001 |
Forseti flytur ræðu á Sjómannadeginum á Ísafirði
|
11.06.2001 |
Fundur með Lord Russel Johnston, forseta Evrópuráðsþingsins á Bessastöðum
|
13.06.2001 |
Móttaka fyrir forseta hinna norrænu Hæstarétta á Bessastöðum
|
15.06.2001 |
Ávarp við vígslu Farfuglaheimilisins við Sundlaugaveg.
|
15.06.2001 |
Sendiherrar erlendra ríkja afhenda trúnaðarbréf á Bessastöðum: sendiherra Tælands, hr. Adisak Panupong sendiherra Angóla, hr. Leovigildo da Costa e Silva sendiherra Chile, hr. José Luis Balmaceda Serigós
|
16.06.2001 |
Alan Weissman blaðamaður tekur viðtal við forseta
|
16.06.2001 |
Móttaka fyrir sendiherra erlendra ríkja á Bessastöðum
|
17.06.2001 |
Þjóðhátíðardagur Íslendinga. Hátíðardagskrá á Austurvelli. Guðsþjónusta í Dómkirkjunni
|
17.06.2001 |
Hátíðarsamkoma í Alþingishúsinu í tilefni þess að 90 ár eru liðin frá stofnun Háskóla Íslands
|
17.06.2001 |
15 Íslendingar sæmdir hinni íslensku fálkaorðu á Bessastöðum. Fréttatilkynning
|
18.-20.06.2001 |
Forseti viðstaddur hátíðarhöld í Svíþjóð í tilefni af silfurbrúðkaupi sænsku konungshjónanna
|
20.06.2001 |
Fundur með framkvæmdastjóra WMO og UNESCO, ásamt Magnúsi Jónssyni og dr. Þór Jakobssyni á Bessastöðum
|
22.06.2001 |
Fundur með Þorsteini Gunnarssyni, rektor Háskólans á Akureyri
|
22.06.2001 |
Setning Kirkjudaga í Hallgrímskirkju
|
23.-24.06.2001 |
Sonia Gandhi, leiðtogi indverska Congressflokksins og fyrrverandi forsætisráðherra Indlands, í heimsókn á Íslandi ásamt föruneyti
|
23.06.2001 |
Fundur forseta og Soniu Gandhi. Blaðamannafundur á Bessastöðum. Heimsókn á handritasýningu Stofnunar Árna Magnússonar. Móttaka borgarstjóra Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur til heiðurs Soniu Gandhi í Höfða. Kvöldverður forseta Íslands til heiðurs Soniu Gandhi
|
24.06.2001 |
Heimsókn í orkuverið á Nesjavöllum. Viðræður um orkumál. Heimsókn í Bláa lónið og sýningarsalinn Eldborg. Brottför Soniu Gandhi frá Íslandi
|
26.06.2001 |
Forsætisráðherra Írlands í opinberri heimsókn í boði forsætisráðherra, morgunfundur með forseta á Bessastöðum
|
25.06.2001 |
Aðmíráll Architzel frá Bandaríkjunum sæmdur stórriddarakrossi með stjörnu hinnar íslensku fálkaorðu
|
25.06.2001 |
Setningarávarp forseta á Sjóveðurþingi WMO á Akureyri á vegum Veðurstofu Íslands og Háskólans á Akureyri.
|
26.06.2001 |
Fundur með Sæmundi Runólfssyni, framkvæmdastjóra UMFÍ á Bessastöðum
|
26.06.2001 |
Forseti hittir nemendur frá Kanada sem eru staddir á Íslandi í tengslum við Snorraverkefnið
|
27.06.2001 |
Ríkisráðsfundur á Bessastöðum
|
28.-30.06.2001 |
Opinber heimsókn til Færeyja. Dagskrá
|
28.06.2001 |
Móttökuathöfn við bæjarráðshúsið í Þórshöfn. Ávarp forseta, flutt á færeysku. Gönguferð út í Þinganes um Reynið. Móttökuathöfn í móttökusal Lögmanns Færeyja. Blaðamannafundur í Lögmannsstofunni. Hádegisverður í boði Lögþings Færeyja. Ávarp. Forseti Íslands tekur á móti Íslendingum og Færeyingum í Norðurlandahúsinu. Um kvöldið er ekið að Kirkjubæ og hin forna Magnúsardómkirkja skoðuð. Páll Patursson bóndi á Kirkjubæ sýnir bæinn og umhverfi hans. Hátíðarkvöldverður í eldskálanum í Kirkjubæ í boði lögmanns Færeyja. Ávarp
|
29.06.01 |
Siglt með varðskipinu Brimli inn á Skálafjörð. Opinber móttökuathöfn á hafnarsvæði Runavíkur. Kynning á starfsemi Atlantic Supply Base, samtaka um olíuútgerðarhöfn í Runavík. Ekið til Nyrðri-Götu. Sveitarstjórn Götu tekur á móti forseta og fylgdarliði við gömlu kirkjuna í Götu. Gengið að Þrándargrunni, safnahúsi fornminjafélagsins í Götu og gömlu kirkjunni. Dagskrá við nýju kirkjuna, samkór Götu og Leirvíkur syngur. Siglt með Brimli frá Fuglafirði til Klakksvíkur. Móttökuathöfn á bryggjunni. Hádegisverður í boði Bæjarstjórnar Klakksvíkur. Heimsókn á vinnustaði og elliheimili þar sem forseta gefst tækifæri til að spjalla við gamla sjómenn sem sótt hafa Íslandsmið. Farið í Kuney. Forseti gróðursetur tré og þiggur kaffiveitingar í samkomuhúsinu. Siglt til Þórshafnar með Brimli. Forseti og lögmaður halda sameiginlegan blaðamannafund um borð í skipinu. Kvöldverður forseta Íslands í Þórshafnarklúbbnum.
|
30.06.2001 |
Heimsókn í Listasafnið. Flogið til Vogeyjar. Heimsókn í Sandavog og ekið til Bæjar þar sem hádegisverður er snæddur í Bæjarskóla. Sigling út í Mykines. Gönguferð út í Hólmann, stærstu lundabyggð Færeyja. Flogið úr Mykinesi til Vogeyjar. Kvöldvaka í Miðvogsskóla. Brottför forseta og fylgdarliðs frá Færeyjum
|
Júlí |
01.07.2001 |
Fulltrúar frá Harvardháskóla, hér staddir á vegum SPRON, koma til fundar við forseta á Bessastöðum
|
02.07.2001 |
Fundur á Bessastöðum með Gunnari Erni Kristjánssyni, forstjóra SÍF, og Erni Viðari aðstoðarforstjóra
|
05.07.2001 |
Fundur með Mogens Lykketoft, utanríkisráðherra Danmerkur
|
05.07.2001 |
Alþingi minnist 150 ára afmælis þjóðfundarins á sal í Menntaskólanum í Reykjavík. Móttaka í Þjóðmenningarhúsinu
|
06.06.2001 |
Móttaka á Bessastöðum í tilefni af kínverskri kvikmyndahátíð í Reykjavík
|
10.07.2001 |
Borge Boeskov frá Seattle Bandaríkjunum, sæmdur riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu
|
11.07.2001 |
Fundur með Amos Nada, sendiherra Ísrael
|
11.07.2001 |
Forseti verndari verkefnisins Íslensk dagsverk. Fundur með forsvarsmönnum verkefnisins á Bessastöðum
|
11.07.2001 |
Fundur með Magnúsi Scheving og Ágústi Ingasyni
|
11.07.2001 |
Fundur með Eiði Guðnasyni sendiherra
|
13.07.2001 |
Opinber heimsókn í Mjóafjörð
|
13.07.2001 |
Inger L. Jónsdóttir sýslumaður, Sigfús Vilhjálmsson hreppstjóri, Heiðar W. Jones hreppsnefndarmaður og Vilhjálmur Hjálmarsson, fyrrverandi ráðherra, taka á móti forseta. Ekið að Brekku í Mjóafirði. Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Síldarvinnslunnar, og Finnbogi Jónsson, stjórnarformaður Samherja og Sæsilfurs, kynna starfsemi laxeldisfyrirtækisins Sæsilfurs í Mjóafirði. Sigfús Vilhjálmsson kynnir starfsemi Fiskverkunar Sigfúsar og Páls Vilhjálmssona. Ekið að Dalatanga. Heiðar W. Jones segir frá staðnum og sýnir vitann. Hádegisverður að Sólbrekku með íbúum Mjóafjarðar. Sigfús Vilhjálmsson flytur ávarp. Heimsókn í Mjóafjarðarkirkju. Sigurður Rúnar Ragnarsson sóknarprestur segir frá kirkjunni. Brottför áleiðis til Egilsstaða
|
13.07.2001 |
Setningaráávarp forseta á Landsmóti Ungmennafélags Íslands á Egilsstöðum.
|
14.07.2001 |
Forseti viðstaddur atburði á mótssvæði UMFÍ á Egilsstöðum
|
Ágúst |
07.08.2001 |
Jaap Schröder frá Hollandi sæmdur riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu
|
09.08.2001 |
Fundur með Sigurjóni Sighvatssyni, kvikmyndaframleiðanda og ræðismanni Íslands í Los Angeles
|
11.08.2001 |
Ávarp forseta á Norrænni ráðstefnu um fjölmiðla og boðskiptarannsóknir í Háskólabíói
|
11.08.2001 |
Forseti viðstaddur hátíðarhöld í Þorlákshöfn vegna 50 ára afmælis staðarins og flytur ávarp
|
13.08.2001 |
Fundur með Eiríki Þorlákssyni, forstöðumanni Listasafns Reykjavíkur, og Gerard Bosio
|
14.08.2001 |
Fundur með Guðmundi Emilssyni hljómsveitarstjóra
|
14.08.2001 |
Fundur með Guðmundi Eiríkssyni sendiherra
|
14.08.2001 |
Hátíð vegna útgáfu á sögu Karlakórsins Fóstbræðra
|
17.08.2001 |
Sendiherra Þýskalands, hr. Hendrik Dane, afhendir trúnaðarbréf á Bessastöðum
|
18.08.2001 |
Fundur með Richard King, forseta Rotary International
|
21.08.2001 |
Fundur með Sue Marriott framkvæmdastjóra
|
23.08.2001 |
Sendiherra Litháen, hr. Deividas Matulionis, afhendir trúnaðarbréf
|
24.08.2001 |
Forseti í Osló í tilefni af brúðkaupi krónprins Noregs Haakons Magnus og Mette-Marit Tjessem Höiby. Kvöldverður í boði ríkisstjórnar Noregs
|
25.08.2001 |
Brúðkaup krónprins Noregs Haakons Magnus og Mette-Marit Tjessem Höiby í Osló
|
26.08.2001 |
Hádegisverður Noregskonungs í Osló
|
27.08.2001 |
Hádegisverðarfundur með Gary Doer, forsætisráðherra Manitoba á Bessastöðum
|
September |
01.09.2001 |
Framkvæmdastjóri FIFA og Eggert Magnússon, formaður KSÍ, eiga fund með forseta á Bessastöðum
|
02.09.2001 |
Forseti flytur ávarp á 10 ára afmæli Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna á Hótel Sögu
|
03.09.2001 |
Fundur með Lassi Heinenen frá Finnlandi og Þorsteini Gunnarssyni, rektor Háskólans á Akureyri
|
04.09.2001 |
Ráðstefna ræðismanna Íslands erlendis á vegum utanríkisráðuneytisins. Móttaka á Bessastöðum
|
05.09.2001 |
Fundur með Brent Haymond, ræðismanni Íslands í Utah
|
05.09.2001 |
Fundur með Birgi Thomsen
|
05.09.2001 |
Heimsókn alþjóðlegra vísindamanna ásamt Ólafi Ólafssyni, fyrrverandi landlækni, á Bessastaði
|
06.09.2001 |
Vestur-Íslendingar frá Vancouver hitta forseta á Bessastöðum
|
08.09.2001 |
Afhending verðlauna í Nýsköpunarkeppni grunnskólanemenda í Gerðubergi
|
08.09.2001 |
Hátíðarfundur Frímúrarareglunar í Borgarleikhúsinu
|
10.-11.09.2001 |
Opinber heimsókn í Norður-Þingeyjarsýslu. Dagskrá
|
10.09.2001 |
Fulltrúar sveitarstjórna, sýslumaður og oddviti Kelduneshrepps taka á móti forseta á sýslumörkum við Imbuþúfu. Samkoma í Skúlagarði á vegum Kelduneshrepps með íbúum hreppsins og sveitarstjórn. Haldið í Ásbyrgi, gengið um svæðið með leiðsögn þjóðgarðsvarðar, söngur og ávörp. Ekið að Dettifossi og gengið að fossinum. Heimsókn í skólann á Lundi. Nemendur Öxarfjarðarskóla og börn úr leikskólanum Krílakoti syngja og lesa ljóð. Ávörp. Heimsókn í fiskeldisstöðina Silfurstjörnuna. Ekið að Bóka- og byggðasafni Norður-Þingeyjarsýslu við Kópasker. Heimsókn í sláturhús Fjallalambs. Móttaka í íþróttahúsinu á Kópaskeri á vegum Öxarfjarðarhrepps með íbúum hreppsins, ávörp. Um kvöldið er fjölskylduhátíð í félagsheimilinu Hnitbjörgum á Raufarhöfn þar sem Reynir Þorsteinsson sveitarstjóri ávarpar samkomuna, kór Raufarhafnarkirkju syngur og nemendur í tónlistarskóla og grunnskóla Raufarhafnar flytja lög. Forseti Íslands ávarpar samkomuna og afhendir Hvatningu til ungra Íslendinga
|
11.09.2001 |
Heimsókn í Grunnskólann á Raufarhöfn þar sem skólastarfið er kynnt og spjallað við nemendur. Heimsókn í fiskverkunarhús Jökuls á Raufarhöfn og tölvufyrirtækið Netver. Fyrsti viðkomustaður í Svalbarðshreppi er Sveinungsvík þar sem Gunnar Guðmundsson bóndi kynnir vinnslu rekaviðar. Komið við í Svalbarðskirkju þar sem sveitarstjórn Svalbarðshrepps tekur á móti forseta. Gengið að fjárhúsunum á Svalbarði þar sem hrútasýning fjárræktarfélagsins Þistils fer fram. Móttaka á vegum Svalbarðshrepps í grunnskólanum: ávarp Jóhannesar Sigfússonar oddvita, dagskrá nemenda og sýning á verkefnum þeirra. Kaffiveitingar. Á Þórshöfn er komið við í Þórshafnarkirkju, í Kúfiskverksmiðju HÞ þar sem boðið er upp á skelfisksúpu. Nemendur í Grunnskóla Þórshafnar heimsóttir og eldri borgarar á Nausti, hjúkrunar- og dvalarheimili aldraðra. Dagskrá í Þórshafnarkirkju til að minnast fórnarlamba árásar hryðjuverkamanna á tvíburaturnana í New York fyrr um daginn. Ekið að Sauðanesi þar sem gamli prestbústaðurinn, sem er í endurbyggingu, er skoðaður. Um kvöldið er fjölskylduhátíð í félagsheimilinu Þórsveri á Þórshöfn. Magnús Már Þorvaldsson sveitarstjóri ávarpar samkomuna, tónlistaratriði frá Tónlistarskólanum og nemandi úr grunnskólanum flytur hugvekju. Forseti Íslands ávarpar samkomuna og afhendir Hvatningu til ungra Íslendinga. Fórnarlamba hryðjuverka í New York minnst
|
13.10.2001 |
Hópur eldri félaga í Verkalýðsfélagi Akraness hittir forseta á Bessastöðum
|
14.09.2001 |
Ritstjórn skólablaðs Menntaskólans á Akureyri hittir forseta
|
15.09.2001 |
Ávarp forseta á málþinginu Íslenskt dagsverk í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur
|
15.09.2001 |
Forseti tekur þátt í Grafarvogshátíð og flytur ávarp á hátíðardagskrá í Borgarholtsskóla
|
16.09.2001 |
Móttaka á Bessastöðum til heiðurs José Carreras óperusöngvara
|
18.-21.09.2001 |
Opinber heimsókn til Grikklands. Í föruneyti forseta eru m.a. Sólveig Pétursdóttir dóms- og kirkjumálaráðherra, Ingvi Hrafn Óskarsson aðstoðarmaður dóms- og kirkjumálaráðherra, Halldór Guðmundsson, forstjóri Eddu og formaður stjórnar Listahátíðar, og Sigurður A. Magnússon rithöfundur auk embættismanna utanríkisráðuneytis og forsetaskrifstofu. Dagskrá
|
18.09.2001 |
Opinber móttökuathöfn í forsetahöllinni þar sem forseti Grikklands, Constantinos Stephanopoulos, heilsar forseta og fylgdarliði. Fundur forseta Íslands og forseta Grikklands og blaðamannafundur þeirra í kjölfarið. Fundur með hr. Apostolos Kaklamanis, forseta gríska þingsins. Gengið um miðbæjarmatvörumarkað Aþenu þar sem íslenskar sjávarafurðir eru til sölu. Rústir á Akrópólishæð skoðaðar. Opnunarávarp forseta flutt á ensku á sýningu sem helguð er Halldóri Kiljan Laxness í Menningarmiðstöð Aþenuborgar. Ávarpið á grísku. Ávarpið á íslensku. Ávörp borgarstjóra og varaborgarstjóra Aþenu, erindi Sigurðar A. Magnússonar og Halldórs Guðmundssonar. Fundir með K. Karamanlis, leiðtoga stjórnarandstöðunnar, frú A. Papariga, aðalritara gríska kommúnistaflokksins og N. Constantopoulos, formanni Bandalagsflokksins. Hátíðarkvöldverður forseta Grikklands til heiðurs forseta Íslands í forsetahöllinni. Ávarp forseta. Grísk þýðing
|
19.09.2001 |
Forseti Íslands leggur blómsveig á minnisvarða óþekkta hermannsins í Aþenu. Heimsókn í fornminjasafnið Benaki. Fundur með forsætisráðherra Grikklands, hr. Constantinos Simitis, í Maximos höllinni og blaðamannafundur í kjölfarið. Hádegisverður forsætisráðherra Grikklands til heiðurs forseta Íslands. Fundur forseta með íslenskum viðskiptaaðilum, umboðsmönnum þeirra og fulltrúum frá Verslunarráði Grikklands. Þorsteinn Pálsson sendiherra setur fund og stýrir dagskrá. Fundur forseta og hr. D. Avramopoulos, borgarstjóra Aþenuborgar, í ráðhúsi Aþenu. Forseti Íslands sæmdur gullmerki Aþenuborgar. Ávarp forseta Íslands. Grísk þýðing. Kvöldverður forseta Íslands til heiðurs Constantinos Stephanopoulos forseta Grikklands haldinn á heimili ræðismannshjónanna, Constantin Lyberopoulos og frú Emilíu Koefod-Hansen Lyberopoulos
|
20.09.2001 |
Kveðjuathöfn við forsetahöllina í Aþenu. Ekið til Mýkenu. Anastassios Salesiotis, fylkisstjóri Argolisfylkis, tekur á móti forseta. Fornleifar í Mýkenu skoðaðar. Ekið til Navplion. Hádegisverður í boði fylkisstjóra Argolis. Ávörp. Heimsókn í hið forna leikhús í Epidavros. Kvöldverður í boði fylkisstjóra Argolis. Lok heimsóknar forseta Íslands til Grikklands
|
22.09.2001 |
Fundur á Bessastöðum með sendinefnd frá Bonn og Guðmundi Emilssyni hljómsveitarstjóra
|
22.09.2001 |
Fulltrúar frá Rauða krossinum í Ástralíu, Nýja-Sjálandi og Bandaríkjunum koma til Bessastaða
|
25.-29.09.2001 |
Jóakim Danaprins og Alexandra prinsessa á Íslandi í boði forseta Íslands. Dagskrá
|
25.09.2001 |
Kvöldverður á Bessastöðum til heiðurs hinum konunglegu tignum Joachim prins og Alexöndru prinsessu. Ávarp forseta. Dönsk þýðing.
|
26.09.2001 |
Skoðunarferð um miðbæ Reykjavíkur undir leiðsögn Guðmundar Gunnarssonar, fv. formanns Arkitektafélags Íslands. Heimsóknir í Stofnun Árna Magnússonar, Listasafn Íslands, Hafnarhúsið, Íslenska erfðagreiningu og stoðtækjafyrirtækið Össur
|
27.09.2001 |
Heimsókn í glerverkstæðið í Bergvík. Hádegisverður á Þingvöllum í boði Davíðs Oddssonar forsætisráðherra og frú Ástríðar Thorarensen. Ekið að Gullfossi og Geysi, komið við á Reykholti. Heimsókn í gróðrarstöðina Espiflöt í Reykholti, heimsókn í bæinn Hrosshaga og Húsið á Eyrarbakka skoðað
|
28.09.2001 |
Ferð til Akureyrar og Mývatns. Á Akureyri heimsóttu gestirnir Síðuskóla í Glerárhverfi og Sundlaug Akureyrar. Litast um við Goðafoss á leið til Mývatns. Í Mývatnssveit farið í Námaskarð, Grjótagjá og Dimmuborgir. Listsýning skoðuð í stöðvarhúsi Laxárvirkjunar og staldrað við í byggðasafninu á Grenjaðarstað. Kvöldverður á Akureyri í boði Kristjáns Þórs Júlíussonar bæjarstjóra.
|
29.09.2001 |
Heimsókn í Bláa lónið. Brottför hinna konunglegu gesta frá Íslandi
|
29.09.2001 |
Leif Stavik frá NRK (norska ríkissjónvarpinu) tekur viðtal við forseta á Bessastöðum
|
30.09.2001 |
Fulltrúar Kiwanishreyfingarinnar afhenda forseta K-lykilinn á Bessastöðum
|
30.09.2001 |
Tip top hópur frá Hinu húsinu hittir forseta á Bessastöðum
|
30.09.2001 |
Kvöldverður á Bessastöðum til heiðurs Jacques Diouf, aðalframkvæmdastjóra FAO
|
Október |
01.10.2001 |
Setning ráðstefnu FAO í Háskólabíói
|
01.10.2001 |
Forseti setur Alþingi Íslendinga. Ávarp
|
01.10.2001 |
Fundur með sjávarútvegsráðherra Íran á Bessastöðum
|
01.10.2001 |
Fundur með sjávarútvegsráðherra Indónesíu á Bessastöðum
|
04.10.2001 |
Forseti heimsækir klúbbinn Geysi á Ægisgötu
|
04.10.2001 |
Menntaskólanemar frá Bergen hitta forseta á Bessastöðum
|
04.10.2001 |
Móttaka fyrir þátttakendur á ráðstefnu norrænna hljómsveitarstjóra (Nordisk orkesterkonferens) á Bessastöðum
|
05.10.2001 |
Setningarávarp forseta á lokaráðstefnu Gullna jafnvægisins á Hótel Sögu
|
05.10.2001 |
Launafulltrúar undir leiðsögn sveitarstjóra Bessastaðahrepps koma til Bessastaða
|
05.10.2001 |
Þátttakendur á lokaráðstefnu Gullna jafnvægisins koma til Bessastaða
|
06.10.2001 |
Heimsóknir á söfnunarstaði K-lykils og þátttaka í landsöfnun
|
07.10.2001 |
Fjölskylduganga Laufs og UMFÍ frá Þrastarlundi. Ávarp forseta við upphaf göngu og gróðursetning við göngulok
|
08.10.2001 |
Hópur nemenda úr Menntaskólanum við Sund skoðar fornleifakjallara á Bessastöðum
|
10.10.2001 |
Ráðstefnan "Vinna og geðheilbrigði" í Iðnó
|
13.10.2001 |
Vínardrengjakórinn hittir forseta á Bessastöðum
|
13.10.2001 |
Afmælishátíð Siglfirðingafélagsins á Hótel Sögu. Forseti ávarpar hátíðina og afhendir heiðursverðlaun
|
14.10.2001 |
Móttaka fyrir forystumenn hjá samtökum félagsmiðstöðva í Evrópu
|
15.10.2001 |
Fundur með Halldóri Gunnarssyni, formanni Þroskahjálpar, og Friðriki Sigurðssyni framkvæmdastjóra
|
18.10.2001 |
Fundur með formanni Stúdentaráðs, Þorvarði Tjörva Ólafssyni, og Dagnýju Jónsdóttur, framkvæmdastjóra Stúdentaráðs
|
18.10.2001 |
Ávarp forseta á Landsþingi Þroskahjálpar á Hótel Sögu.
|
20.10.2001 |
Ávarp forseta á Þjóðahátíð Austfirðinga á Reyðarfirði.
|
22.10.2001 |
10 ára afmæli Málbjargar, félags um stam, í Iðnó
|
22.10.2001 |
Fundur með Nirði P. Njarðvík
|
Nóvember |
01.11.2001 |
Erik Skyum-Nilsen, bókmenntafræðingur og þýðandi frá Danmörku, sæmdur riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu
|
02.11.2001 |
Fundur með Gerhard Sabatil, sendiherra fastanefndar framkvæmdastjórnar ESB fyrir Ísland og Noreg
|
02.11.2001 |
Fundur með Waris Dirie baráttukonu frá Sómalíu, Jóhanni Páli Valdimarssyni bókaútgefanda og Guðrúnu Sigfúsdóttur ritstjóra á Bessastöðum
|
02.11.2001 |
Sendiherrar erlendra ríkja afhenda trúnaðarbréf: sendiherra Kólumbíu, hr. Francisco Joes Sanclemente Molina sendiherra Póllands, hr. Andrzej Jaroszyriski
|
06.11.2001 |
Heimsókn í Fjölbrautaskólann í Ármúla. Forseti opnar formlega nýjan upplýsingavef skólans, heimsækir einstakar deildir og snæðir hádegisverð með kennurum. Forseti ávarpar nemendur á opnum umræðufundi og svarar fyrirspurnum
|
08.11.2001 |
Fundur með sendiherra Spánar, hr. Don Luis de la Torre, á Bessastöðum
|
08.11.2001 |
Fundur með Heiðari og Ásgrími Ásgeirssonum um málefni Kjarvalsstofu á Borgarfirði eystra
|
09.11.2001 |
Séra Torfi Stefánsson færir forseta eintak bókarinnar Eldur á Möðruvöllum
|
11.11.2001 |
Afhending Edduverðlaunanna á Broadway
|
12.11.2001 |
Evelyn Stefansson Nef frá Kanada sæmd riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu
|
13.11.2001 |
Forseti heimsækir Borgarholtsskóla í Grafarvogi, gengur um skólann í fylgd skólameistara og fulltrúa nemenda, kynnir sér starf einstakra deilda, ávarpar nemendur á opnum umræðufundi og svarar fyrirspurnum
|
14.11.2001 |
Forseti í viðtal við blaðið Bæjarins besta á Ísafirði
|
14.11.2001 |
Nemendur grunnskólans á Seyðisfirði hitta forseta á Bessastöðum
|
15.11.2001 |
Þorsteinn Helgason tekur sjónvarpsviðtal við forseta vegna þátta um Tyrkjaránið
|
20.11.2001 |
Guðrún Ásmundsdóttir leikkona kemur með hóp blindra í heimsókn á Bessastaði
|
25.11.-26.11.2001 |
Forseti Íslands í Bandaríkjunum
|
26.11.2001 |
Forseti skoðar völl hermdarverkanna 11. september á Manhattan í fylgd með fulltrúum borgaryfirvalda. Fundur með forsvarsmönnum Ford Foundation um málefni norðurslóða. Fundur með stjórn Carnegie Corporation um málefni norðurslóða. Heimför til Íslands
|
27.11.2001 |
Sendiherra Kanada, hr. Gerald Skinner, afhendir trúnaðarbréf
|
28.11.2001 |
Félagar í Lionsklúbbinum Tý koma til Bessastaða
|
29.11.2001 |
Forseta afhent fyrsta eintak bókarinnar Íslenskar eldstöðvar eftir Ara Trausta Guðmundsson
|
29.11.2001 |
Fjölskylduhátíð í Fjölbrautaskóla Garðabæjar
|
30.11.2001 |
Viðtal við forseta í þættinum Kastljósi í Ríkissjónvarpinu
|
Desember |
01.12.2001 |
Úthlutun úr Kristnihátíðarsjóði í Þjóðmenningarhúsinu
|
01.12.2001 |
Hátíðarsamkoma Stúdentaráðs Háskóla Íslands í Hátíðarsal Háskóla Íslands
|
01.12.2001 |
Móttaka á Bessastöðum til heiðurs Stúdentaráði Háskóla Íslands
|
01.12.2001 |
Kvöldverður á Bessastöðum til heiðurs Alþingi
|
02.12.2001 |
Guðsþjónusta í Bessastaðakirkju í umsjá guðfræðinema og kirkjukaffi á eftir í Bessastaðastofu
|
02.12.2001 |
Forseti í viðtal við tímaritið Vikuna
|
03.12.2001 |
Forseti afhendir Íslensku bjartsýnisverðlaunin
|
03.12.2001 |
Fundur með sendiherra Hollands
|
04.12.2001 |
Fundur með Dan Pena, stjórnenda- og árangursþjálfara frá Bandaríkjunum, á Bessastöðum
|
06.12.2001 |
Brent Haymond, ræðismaður Íslands í Utah, og kínverskir ferðamálafrömuðir koma til Bessastaða
|
11.12.2001 |
Börn úr leikskóla og grunnskóla Álftaness kveikja á jólatrjám á Bessastöðum. Jólasveinar, söngur
|
12.12.2001 |
Forseti í viðtal við DV
|
12.12.2001 |
Útgáfuhátíð bókarinnar Rafeindatækni í 150 ár eftir Þorstein Óskarsson í Höfða
|
14.12.2001 |
Samkoma í Ými vegna útgáfu bókar um 75 ára sögu Karlakórs Reykjavíkur
|
15.12.2001 |
Ávarp forseta á friðarsamkomu í íþróttahúsinu Kaplakrika
|
17.12.2001 |
Sendiherra Króatíu, frú Ana Marija Besker afhendir trúnaðarbréf
|
18.12. 2001 |
Afreksmerki hins íslenska lýðveldis. Forseti Íslands sæmir einn mann gullmerki og fimm menn silfurmerki úr björgunarsveit Varnarliðsins á Keflavíkurvelli við hátíðlega athöfn á Bessastöðum. Fréttatilkynning
|
19.12.2001 |
Afhending Friðarljóss frá Betlehem, á vegum Skátahreyfingarinnar, við Eimskipafélagshúsið og gengið að Dómkirkjunni. Forseti ávarpar í kirkjunni
|
19.12.2001 |
Fundur með utanríkisráðherra Króatíu, hr. Picula
|
20.12.2001 |
Fundur með Friðjóni Þórðarsyni, fyrrverandi ráðherra, og Sigurði Rúnari Friðjónssyni um málefni Eiríksstaða
|
20.12.2001 |
Fundur með Eiði Guðnasyni sendiherra
|
21.12.2001 |
Opnun D-álmu Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja
|
21.12.2001 |
Fundur með kínverskum ferðamálafrömuðum á Bessastöðum
|
27.12.2001 |
Fulltrúar frá Blindrafélaginu og Landsbjörgu afhenda forseta hlífðargleraugu á Bessastöðum
|
28.12.2001 |
Terence Hunt frá Bretlandi sæmdur riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu
|
28.12.2001 |
Veiting heiðursverðlauna úr sjóði Ásu Guðmundsdóttur Wright í Norræna húsinu
|
31.12.2001 |
Ríkisráðsfundur á Bessastöðum
|
31.12.2001 |
Úthlutun úr Rithöfundasjóði í húsakynnum Ríkisútvarpsins við Efstaleiti
|