Veftré Print page English

Bessastaðakirkja

 

 

BessastaðakirkjaTalið er að kirkjur hafi staðið á Bessastöðum frá því um árið 1000 en elstu heimildir um kirkju þar eru frá árinu 1200.

 

Fyrsta kirkjan var helguð heilagri Maríu guðsmóður og heilögum Nikulási. Núverandi steinkirkja á Bessastöðum, byggð að tilhlutan Kristjáns 7. Danakonungs, var vígð 1796 og er hún meðal elstu steinbygginga landsins. Smíði turnsins lauk þó ekki fyrr en 1823. Eru veggir hennar ríflega metri að þykkt, hlaðnir úr grjóti úr Gálgahrauni.

 



Verulegar breytingar voru gerðar á innviðum Bessastaðakirkju á árunum 1945-47, m.a. lagt trégólf í stað flísa og predikunarstóllinn frá því um 1700 vék fyrir nýjum. Steint gler var sett í glugga kirkjunnar árið 1956. Gluggarnir eru átta talsins eftir listamennina Finn Jónsson og Guðmund Einarsson frá Miðdal og þeir sýna atburði úr Biblíunni og úr kristnisögu Íslands. Gagnger viðgerð fór fram á kirkjunni árið 1998.



Umsjónarmaður kirkju er Helga Kr. Einarsdóttir.
Sími: 862 0782