Veftré Print page English

Lög um þjóðsöng Íslendinga

1983 nr. 7 8. mars


Tóku gildi 25. mars 1983. Breytt með l. 82/1998 (tóku gildi 1. okt. 1998).

1. gr. Þjóðsöngur Íslendinga er „Ó Guð vors lands“, ljóð eftir Matthías Jochumsson og lag Sveinbjörns Sveinbjörnssonar.
2. gr. Þjóðsöngurinn er eign íslensku þjóðarinnar, og fer forsætisráðuneytið með umráð yfir útgáfurétti á honum.
3. gr. Þjóðsönginn skal ekki flytja eða birta í annarri mynd en hinni upprunalegu gerð. Ekki er heimilt að nota þjóðsönginn á nokkurn hátt í viðskipta- eða auglýsingaskyni.
4. gr. Nú rís ágreiningur um rétta notkun þjóðsöngsins og sker þá forsætisráðherra úr.
5. gr. Með forsetaúrskurði skal setja nánari ákvæði um notkun þjóðsöngsins, ef þörf þykir.
6. gr. Brot gegn ákvæðum laga þessara varða sektum eða [fangelsi allt að 2 árum].1) Með mál út af slíkum brotum skal farið að hætti opinberra mála.
1)L. 82/1998, 171. gr.