Veftré Print page English

Gerð fánans

 

1. Hinn almenni þjóðfáni
Hinn almenni þjóðfániAf lýsingu þjóðfánans í 1. gr. fánalaganna nr. 34/1944 kemur eftirfarandi fram: Bláu stangarreitirnir eru ferningar, þ.e. allar hliðar þeirra jafnlangar og ytri bláu reitirnir eru jafnbreiðir ferningunum tveimur, en tvöfalt lengri. Rauði krossinn á að vera í miðjum hvíta krossinum, en við það myndast jafnbreiðar hvítar rendur meðfram rauða krossinum. Breidd rauða krossins á að vera 1/9 af breidd fánans, en breidd hvítu randanna helmingi minni, þ.e. 1/18 af breidd fánans.

 


Í fánalögunum segir að fánalitirnir séu „heiðblár", „eldrauður" og „mjallhvítur“. Til að taka af vafa að því er snertir litina er nú miðað við alþjóðlega litastaðla eins og fram kemur í auglýsingu forsætisráðuneytisins.

 

Að því er varðar prentun fánalita þarf að kappkosta að ná réttum litum, en þar sem litirnir prentast misjafnlega eftir pappírsgerð er erfitt að mæla fyrir um ákveðna staðla.

 

Í auglýsingu nr. 6/1991 um liti íslenska fánans kemur fram að upplýsingar um fánaliti veitir forsætisráðuneytið og erlendis sendiráð Íslands. Ennfremur skal fáninn í réttum litum og hlutföllum vera til sýnis í Þjóðminjasafni Íslands og hjá lögreglustjórum landsins.

 

2. Ríkisfáninn
Ríkisfáninn (tjúgufáninn)Ríkisfáninn (tjúgufáninn) er hinn almenni þjóðfáni klofinn að framan. Hann er að því leyti frábrugðinn hinum almenna þjóðfána að ytri reitir hans eru þrefalt lengri en stangarreitirnir og klauf er upp í hann að framan, skorin eftir beinum línum, sem dregnar eru frá ytri hornum fánans inn að miðlínu hans á þann hátt að þær skera innjaðra ytri reitanna, þar sem saman koma 4/7 ytri og 3/7 innri hluta lengdar þeirra. Þar sem nefndar línur nema við arm rauða krossins er hann þverskorinn.

 

3. Fáni forseta Íslands
Fáni forseta Íslands er hinn íslenski ríkisfáni (tjúgufáni), en þar sem armar krossanna mætast í fánanum er skjaldarmerki Íslands og skjaldberar á hvítum ferhyrndum reit.

 

4. Tollgæslufáni
Tollgæslufáni er ríkisfáninn með upphafstéi (T) í miðjum efri stangarreit. Téið er silfurlitt. Hæð tésins er helmingur af breidd fánareitsins.

 

Hlutföll hins almenna þjóðfána:

 Hlutföll hins almenna þjóðfána

 

Hlutföll ríkisfánans:

 

Hlutföll ríkisfánans