Veftré Print page English

3X Technology


Forseti heimsækir 3X Technology á Ísafirði sem framleiðir hátækni tækjabúnað fyrir matvælaframleiðslu, einkum í tengslum við sjávarútveg. Fyrirtækið selur framleiðslu sína víða um heim og hefur unnið nýja markaði í Asíu, m.a. í Kína. Starfsmönnum þess hefur fjölgað á ný í kjölfar vaxandi verkefna. Fyrirtækið hlaut Útflutningsverðlaun forseta Íslands 2006 fyrir frábæran árangur.