Útflutningsverðlaun. Ný heiðursviðurkenning
Forseti afhendir
Útflutningsverðlaunin við hátíðlega athöfn á Bessastöðum. Verðlaunin hlaut
Ferðaþjónusta bænda. Einnig var afhent sérstök heiðursviðurkenning til einstaklings sem aukið hefur hróður Íslands á erlendri grundu. Slík heiðursviðurkenning er nýmæli. Viðurkenninguna hlaut Kristinn Sigmundsson óperusöngvari. Íslandsstofa hefur nú tekið við hlutverki Útflutningsráðs sem ábyrgðar- og umsjónaraðili Útflutningsverðlaunanna.
Friðrik Pálsson formaður úthlutunarnefndar tilkynnir hvaða fyrirtæki hlýtur verðlaunin og forseti Íslands afhendir þau. Þá verður afhjúpað listaverk sem verðlaununum fylgir. Höfundur verksins er Inga Elín myndlistarmaður. Forseti afhendir einnig heiðursviðurkenningu til einstaklings.
Í dómnefnd vegna verðlaunanna sátu að þessu sinni Björgólfur Jóhannsson frá Landsnefnd Alþjóða verslunarráðsins, Ingjaldur Hannibalsson frá viðskiptafræðideild Háskóla Íslands, Friðrik Pálsson frá Íslandsstofu, Þórunn Sveinbjörnsdóttir frá Alþýðusambandi Íslands og Örnólfur Thorsson frá embætti forseta Íslands.
Fulltrúum fjölmiðla er boðið að vera viðstaddir verðlaunaveitinguna. Æskilegt er að þeir mæti í tæka tíð og taki tillit til þess í klæðaburði að um hátíðlega athöfn er að ræða.