Forvarnir. Youth in Europe
Forseti á fund með fulltrúum Rannsókna og greiningar, Ingu Dóru Sigfúsdóttur og Jóni Sigfússyni um forvarnaverkefnið Youth in Europe sem starfrækt hefur verið í fjölmörgum borgum í Evrópu. Forseti er
verndari verkefnisins og hefur það skilað verulegum árangri á undanförnum árum. Undirstöður verkefnisins eru rannsóknir íslenskra félagsvísindamanna en þeir hafa svo haft forystu um hliðstæðar rannsóknir í þessum evrópsku borgum. Verkefnið er unnið í tengslum við samtök evrópskra borga gegn fíkniefnum
ECAD, European Cities Against Drugs.