Veftré Print page English

Forseti tekur sæti í Þróunarráði Indlands


Forseti Íslands hefur þegið boð um að taka sæti í Þróunarráði Indlands. Ráðinu er ætlað að móta tillögur um á hvern hátt Indverjar geta styrkt efnahagslíf sitt og velferð þjóðarinnar án þess að umhverfi bíði varanlegt tjón af eða gæðum náttúrunnar verði stefnt í hættu. Sjá nánar í fréttatilkynningu.