Veftré Print page English

Samúðarkveðjur til forseta Frakklands og frönsku þjóðarinnar


Forseti sendir forseta Frakklands François Hollande samúðarkveðju frá sér og íslensku þjóðinni vegna hinnar fólskulegu árásar í Nice í Frakklandi í gærkvöldi. Hugur okkar allra sé hjá hinum látnu, aðstandendum þeirra og vinum, sem og þeim sem nú berjast fyrir lífi sínu á sjúkrahúsum. Fórnarlömb þessarar atlögu voru saklaust fólk, fjölskyldur og vinir, sem fögnuðu þjóðhátíðardegi Frakklands sem tileinkaður sé hinum sígildu hugsjónum um frelsi, jafnrétti og bræðralag. Það sé brýnna en nokkru sinni fyrr að þjóðir heims efli órofa samstöðu um samfélag lýðræðis og mannúðar en láti ekki árásir af þessum toga raska þeim grunngildum sem barátta undanfarinna alda hefur skilað þjóðum heims. Fréttatilkynning.