Veftré Print page English

Erkibiskup grísku rétttrúnaðarkirkjunnar


Erkibiskup grísku rétttrúnaðarkirkjunnarForseti á fund með erkibiskup grísku rétttrúnaðarkirkjunnar, Cleopas Strongylis, en Ísland er ásamt öðrum Norðurlöndum umdæmi erkibiskupsins. Rætt var um stöðu kirkjunnar, bæði á Norðurlöndum og á heimsvísu, og áhuga patríarkans í Miklagarði á baráttunni gegn loftslagsbreytingum og á málefnum Norðurslóða. Einnig var rætt um þróun mála í Grikklandi. Fundinn sat einnig ræðismaður Grikklands á Íslandi Rafn Alexander Sigurðsson.