Veftré Print page English

Chicago Council on Global Affairs


Forseti ræðir við sendinefnd frá Chicago Council on Global Affairs sem heimsækir Ísland, Norður-Noreg og Grænland til að kynna sér málefni Norðurslóða og vaxandi samstarf í þeim heimshluta, einkum með tilliti til hlutverks Bandaríkjanna og þátttöku annarra ríkja í því samstarfi. Sendinefndin lýsti miklum áhuga á þátttöku ráðsins í þingum Hringborðs Norðurslóða - Arctic Circle, bæði þeim sem haldin eru árlega á Íslandi og þeim sem haldin eru í öðrum löndum.