Veftré Print page English

Sendiherra Kanada


Forseti á fund með sendiherra Kanada, Stuart Wheeler, sem senn lætur af störfum. Rætt var um aukna samvinnu Íslands og Kanada í málefnum Norðurslóða og þátttöku kanadískra fulltrúa í fundum Arctic Circle, bæði á Íslandi og á Grænlandi sem og nýja stefnu stjórnvalda í Kanada í málefnum Norðurslóða. Einnig var fjallað um mikilvægi hinna traustu tengsla við fólk af íslenskum ættum í Kanada og fjölþætt samskipti Íslands við hin einstöku fylki í Kanada.