Veftré Print page English

Vestur-Íslendingar í Utah


Forseti á fund með Lil Shepherd sem lengi hefur verið í forystu samfélags Vestur-Íslendinga í Utah og sérstaklega stuðlað að auknum samskiptum við íbúanna í Spanish Fork. Hún og eiginmaður hennar Terry Shepherd, sem einnig sat fundinn, dvelja nokkra mánuði á Íslandi á vegum Mormónakirkjunnar. Rætt var um eflingu samskipta Íslendinga við afkomendur þeirra sem fluttu til Utah fyrir meir en hundrað árum.