Útflutningsverðlaun. Heiðursviðurkenning
Forseti afhendir Útflutningsverðlaun forseta Íslands við hátíðlega athöfn á Bessastöðum en verðlaunin hlaut að þessu sinni fyrirtækið Nox Medical sem þróað hefur tæki til svefnrannsókna og lækninga. Einnig var Helga Tómassyni, ballettdansara og listrænum stjórnanda San Francisco ballettsins, veitt sérstök heiðursviðurkenning fyrir að hafa eflt orðstír Íslands á sviði menningar og lista. Útflutningsverðlaunin eru samstarfsverkefni Íslandsstofu og forsetaembættisins og velur sérstök dómnefnd verðlaunahafa.