Veftré Print page English

Framúrskarandi ungir Íslendingar


Forseti sækir hátíð JCI hreyfingarinnar á Íslandi sem haldin er í Þjóðmenningarhúsinu þar sem veittar voru viðurkenningar þeim sem tilnefndir voru til verðlaunanna Framúskarandi ungir Íslendingar. Forseti afhenti svo sigurvegaranum verðlaunin og þakkaði í ávarpi JCI hreyfingunni fyrir þetta framtak sem á undanförnum árum varpað hefði ljósi á þann árangur sem ungir Íslendingar væru að ná á fjölmörgum sviðum samfélags, íþrótta, vísinda og viðskiptalífs.