Samstarf við Grænland
Forseti á fund með Ágúst Þór Árnasyni, aðjúnkt við Háskólann á Akureyri, Gunnari Haraldssyni hagfræðingi og Arngrími Jóhannssyni flugstjóra um eflingu margháttaðs samstarfs við Grænland, bæði á sviði menntunar og atvinnulífs, nýja kynningarmiðstöð Norðurslóða á Akureyri og hlutverk Háskólans á Akureyri og bæjarins í Norðurslóðasamstarfi á alþjóðavettvangi.