Veftré Print page English

EVE Fanfest


Forseti flytur ávarp á lokasamkomu EVE Fanfest sem CCP efndi til í Eldborgarsalnum í Hörpu en hátíðin er sótt af mörg hundruð þátttakendum víða að úr veröldinni. Í ávarpinu áréttaði forseti hvernig sagnahefð Íslendinga, þar sem samin hefðu verið ljóð og sögur fyrst og fremst fyrir okkur sjálf, væri nú burðarás í hinum mikla árangri CCP sem fengi til liðs við sig þátttakendur og hæfileikafólk víða að úr veröldinni til að skapa nýja heima og nýja sögu.