Veftré Print page English

SÁÁ. Skóflustunga að Vík


Forseti tekur fyrstu skóflustunguna að nýrri meðferðarstöð SÁÁ við athöfn sem fram fór á landi samtakanna að Vík á Kjalarnesi. Hinar nýju byggingar munu efla mjög starfsemi og þjónustu SÁÁ. Í ávarpi þakkaði forseti samtökunum fyrir framlag þeirra á undanförnum árum og áréttaði að árangur SÁÁ væri ekki aðeins mikilvægur fyrir Íslendinga heldur hefði hann einnig vakið verulega athygli víða um heim. Að lokinni athöfn sótti forsæti kaffisamsæti með vistmönnum á meðferðarstöðinni og forystumönnum samtakanna.