Veftré Print page English

Samúðarkveðja til forseta Ekvadors


Forseti sendir samúðarkveðju sína og íslensku þjóðarinnar til Rafael Correa forseta Ekvadors vegna hinna mannskæðu jarðskjálfta í landinu. Í kveðjunni minnir forseti á að þótt einstaklingurinn geti verið smár frammi fyrir hamförum náttúrunnar séu mennirnir sterkir þegar þeir standi saman; hugur Íslendinga sé hjá fórnarlömbum jarðskjálftanna, ættingjum þeirra, vinum og öðrum sem eigi um sárt að binda. Fréttatilkynning.