Sendiherra Serbíu
Forseti á fund með sendiherra Serbíu, frú Suzana Boskovic-Prodanovic, sem afhenti trúnaðarbréf sitt á Bessastöðum. Rætt var um möguleika Serbíu í nýtingu jarðhita og um samvinnu í orkuframkvæmdum á fyrri tíð. Einnig var fjallað um stöðu stjórnmála og efnahagslífs í Serbíu, vaxandi samstöðu í landinu sem og ólík viðhorf til samninga við Evrópusambandið í komandi framtíð.