Veftré Print page English

Sendiherra Ungverjalands


Forseti á fund með nýjum sendiherra Ungverjalands, frú Anna Mária Sikó, sem afhenti trúnaðarbréf sitt á Bessastöðum. Rætt var um samvinnu á sviði jarðhita, einkum varðandi lagningu hitaveitna og þróun ylræktar, en þau efni voru á dagskrá í heimsókn forseta til Ungverjalands á sínum tíma. Þá var einnig rætt ítarlega um stöðu Ungverjalands innan Evrópusambandsins, mismunandi viðhorf til þróunar sambandsins sem og vandamál sem fylgja vaxandi flóttamannastraumi í Evrópu.

 

Ungverja2016