Veftré Print page English

Sendiherra Malís


Forseti á fund með nýjum sendiherra Malí á Íslandi, hr. Toumani Djimé Diallo, sem afhenti trúnaðarbréf sitt á Bessastöðum. Rætt var um baráttuna gegn hryðjuverkaöflum í landinu og nauðsyn alþjóðlegrar samstöðu í því verkefni. Þá var einnig rætt um landeyðingu í Malí og hvernig reynsla Íslendinga á sviði landgræðslu gæti komið að góðum notum. 

 

Mali2016