Veftré Print page English

Sendiherra Egyptalands


Forseti á fund með nýjum sendiherra Egyptalands á Íslandi, frú Mahy Hassan Abdellatif Mohamed, sem afhenti trúnaðarbréf sitt á Bessastöðum. Rætt var um framlag Háskóla Sameinuðu þjóðanna á Íslandi til þjálfunar á sviði fiskveiða, landgræðslu og jafnréttis kynjanna. Þá var einnig fjallað um þróun mála í Egyptalandi og stefnu nýrrar ríkisstjórnar varðandi styrkari stöðu kvenna og þróun sjávarútvegs.

 

Egyptaland2016