Kveðjumessa í Grafarvogskirkju
Forseti sækir kveðjumessu í Grafarvogskirkju þar sem sr. Vigfús Þór Árnason kveður söfnuðinn en hann hefur þjónað Grafarvogskirkju og Siglufjarðarkirkju í um fjörutíu ár. Biskup Íslands, frú Agnes M. Sigurðardóttir, var einnig viðstödd kveðjumessuna. Að messu lokinni var kirkjukaffi á neðri hæð Grafarvogskirkju.