Orkukerfi á Norðurslóðum
Forseti á fund með fulltrúum Nora frá Færeyjum og Noregi, sem vinna að kynningu á hugmyndum um samtengingu raforkukerfis ríkja á Norðurslóðum þar eð ný tækni í sæstrengjum og reynsla Norðmanna opnar nýjar leiðir í þessum efnum. Rætt var um að kynna þessa sýn á þingi Hringborðs Norðurslóða - Arctic Circle sem haldið verður í Reykjavík í haust.