Veftré Print page English

Sendiherra Bandaríkjanna


Forseti á fund með sendiherra Bandaríkjanna Robert Barber þar sem rætt var um þátttöku Bandaríkjanna í þingi Hringborðs Norðurslóða – Arctic Circle sem haldið verður í Reykjavík í október sem og í málþingum Hringborðsins, Arctic Circle Forums, sem haldin verða á Grænlandi í maí og í Québec í desember. Bandaríkin fara nú með formennsku í Norðurskautsráðinu og er ætlunin að kynna áherslur og árangur í þeirri formannstíð.