Veftré Print page English

Fjármálalæsi


Forseti á fund með Breka Karlssyni frá Stofnun um fjármálalæsi en hann kynnti tillögur um að efla fjármálalæsi meðal almennings og ungmenna. Stofnunin hefur unnið með ýmsum alþjóðasamtökum á því sviði og á nú í viðræðum við seðlabanka í nokkrum Evrópulöndum og ýmsa aðila á Íslandi um nýja nálgun á fræðslu á þessu sviði.