Veftré Print page English

Kynning á tækni og framleiðslu í sjávarútvegi


Forseti á fund í Húsi sjávarklasans á Grandagarði um nýjar leiðir til að kynna þann árangur sem Íslendingar hafa náð í vinnslu sjávarafla og þróun margvíslegrar tækni og nýjunga á sviði sjávarútvegs. Slík kynningarstarfsemi gæti tekið mið af því samstarfi sem þróast hefur á undanförnum árum á sviði jarðhitans og skapað hefur Íslandi sérstakan sess á alþjóðavettvangi á því sviði.