Sendiherra Rússlands
Forseti á fund með sendiherra Rússlands Anton Vasiliev um þátttöku einstakra svæða í Rússlandi í þingi Arctic Circle sem haldið verður í Reykjavík í október sem og í málþinginu sem haldið verður í Québec í Kanada í desember en það verður einkum helgað svæðaþróun á Norðurslóðum. Þá var einnig fjallað almennt um þróun mála á Norðurslóðum.