Sendiherra Kanada
Forseti á fund með sendiherra Kanada Stewart Wheeler um þátttöku í málþingi Arctic Circle, sem haldið verður á Grænlandi í maí, og í þingi Arctic Circle sem haldið verður í Reykjavík í október. Þá var einnig fjallað um væntanlegt málþing í Québec í Kanada í desember sem sérstaklega verður helgað svæðaþróun á Norðurslóðum. Einnig var rætt um nýjar áherslur ríkisstjórnar Kanada í baráttunni gegn loftslagsbreytingum og málefnum Norðurslóða sem og hinn sterka sögulega arf byggða Íslendinga í Kanada.