HönnunarMars
Forseti tekur á móti þátttakendum í HönnunarMars og erlendum sérfræðingum og fjölmiðlafólki sem sækir þennan vettvang íslenskrar hönnunar. Í ávarpi fagnaði forseti þeirri miklu grósku sem einkenndi íslenska hönnun og ítrekaði mikilvægi þess að ungir hönnuðir hefðu ávallt greiðan aðgang að vettvangi sem þessum. Nýsköpun væri sífellt mikilvægari þáttur í árangri þjóða og því skipti hlutverk HönnunarMars Íslendinga miklu.