Veftré Print page English

Siglingar og vöruflutningar á Norðurslóðum


Forseti á fund með Gylfa Sigfússyni, forstjóra Eimskips, um þróun siglinga og vöruflutninga á Norðurslóðum, samstarf við Grænland og aðrar nágrannaþjóðir sem og siglingaleiðir til Bandaríkjanna og Norður-Noregs. Þá var og fjallað um málþing Arctic Circle, sem haldið verður á Grænlandi í maí, þar sem meðal annars verður rætt um þróun viðskiptalífs á Norðurslóðum, siglingar, ferðaþjónustu, sjávarútveg og fjárfestingar.