Menningarverðlaun DV
Forseti veitir heiðursverðlaun Menningarverðlauna DV en þau hlaut að þessu sinni skáldið Þorsteinn frá Hamri. Verðlaun voru einnig veitt í ýmsum flokkum lista við hátíðlega athöfn fram fór í Iðnó. Í ávarpi þakkaði forseti DV fyrir að efna til þessara verðlauna á hverju ári en Menningarverðlaunin væru hin einu í landinu sem tækju til svo margra sviða í íslensku menningarlífi og endurspegluðu grósku og nýsköpun á afgerandi hátt.