Alþjóðlegt skátamót
Forseti á fund með Joao Armando Goncalves, formanni heimsstjórnar skátafélaga, WOSM, og forystumönnum Skátahreyfingarinnar um undirbúning að alþjóðlegu skátamóti sem haldið verður á Íslandi á næsta ári. Mótinu er ætlað að efla þjálfun skáta og verður sótt af þúsundum skáta frá fjölmörgum löndum.