Sendiherra Kólumbíu
Forseti á fund með nýjum sendiherra Kólumbíu, frú Sonia Duran Smela, sem afhenti trúnaðarbréf sitt á Bessastöðum. Rætt var um árangur af friðarviðræðum í Kólumbíu og baráttu gegn skæruliðum; árangur sem skapað gæti grundvöll fyrir farsæla þróun efnahagslífs og aukna velsæld. Í því sambandi lýsti sendiherrann miklum áhuga á að kynna sér reynslu og þekkingu Íslendinga á nýtingu jarðhita og þróun arðbærs og sjálfbærs sjávarútvegs.