Veftré Print page English

Nýsveinahátíð


Forseti afhendir viðurkenningar og flytur ávarp á Nýsveinahátíð sem haldin er af Iðnaðarmannafélaginu í Reykjavík í Ráðhúsi Reykjavíkurborgar. Á athöfninni voru heiðraðir iðnsveinar sem skarað hafa framúr í ýmsum greinum og Hjalti Einarsson tilnefndur heiðursiðnaðarmaður ársins 2016. Í ávarpi áréttaði forseti framlag iðnaðarmanna til uppbyggingar íslensks þjóðfélags og mikilvægi þess að efla iðnmenntun í anda þeirrar sýnar sem einkennt hefur forystusveit iðanaðarmannafélaganna.