Heimsþing hreinnar orku
Forseti er viðstaddur setningu Heimsþings hreinnar orku, World Future Energy Summit, sem haldið er í Abu Dhabi og er ásamt öðrum alþjóðlegum þingum burðarás í sérstakri viku sem helguð er umhverfismálum og sjálfbærni, Abu Dhabi Sustainability Week. Á setningarathöfninni fluttu ræður Ban Ki-moon framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna og Enrique Peña Nieto forseti Mexíkó. Alls sækja þingið og aðra atburði vikunnar um 3000 þátttakendur víða að úr veröldinni. Mynd