Veftré Print page English

Hátíðarkvöldverður Klúbbs matreiðslumeistara


Forseti sækir hátíðarkvöldverð Klúbbs matreiðslumeistara, sem haldinn er á Hilton hótelinu, og flytur ávarp í lok hans þar sem hann þakkar íslenskum matreiðslumeisturum fyrir mikinn árangur í þróun matargerðar, eflingu fjölþættra veitingahúsa og framlag þeirra til hins mikla vaxtar í ferðaþjónustunni á undanförnum árum. Mikilvægt væri að hlúa að menntun og þjálfun matreiðslumanna til að styrkja sess Íslands sem ferðamannalands og styrkja mannlíf og menningu.