Veftré Print page English

Viðtal við People's Daily


Forseti ræðir við blaðamann kínverska blaðsins People's Daily um samstarf landanna í tilefni af því að 45 ár eru liðin frá því tekið var upp stjórnmálasamband milli landanna. Rætt var um samstarf á sviði grænnar okru, einkum jarðhita, sem og rannsóknir á bráðnun íss á Norðurslóðum og hugsanlegar siglingar um norðurleiðina. Þá var einnig fjallað um þróun efnahagslífs og samfélags í Kína og hvernig samstarf landanna endurspeglar tækifæri stórra þjóða og smárra til að vinna sameiginlega að margvíslegum verkefnum.