Veftré Print page English

Kvöldverður í boði sendiherra Bandaríkjanna og Stofnunar Sameinuðu þjóðanna


Forseti situr kvöldverð í boði sendiherra Bandaríkjanna í Frakklandi, Jane D. Harley, og Cathy Calvin framkvæmdastjóra Stofnunar Sameinuðu þjóðanna, UN Foundation. Kvöldverðurinn er haldinn í embættisbústað sendiherrans í París og sækja hann m.a. margir háttsettir bandarískir þátttakendur í loftslagsráðstefnunni COP21 í París sem og stjórnendur alþjóðastofnana.