Gagnaver
Forseti flytur ræðu á málþingi um gagnaver og sjálfbærni sem Bellona umhverfisstofnunin efnir til á loftslagsráðstefnunni COP21 í París en aðalstöðvar stofnunarinnar eru í Noregi. Í ræðunni lýsti forseti uppbyggingu gagnavera á Íslandi, hinni sterku stöðu sem nýting hreinnar orku skapar þessari grein sem og þeim kostum sem fylgja varðveislu upplýsinga í frjálsu lýðræðissamfélagi. Hinn gríðarlegi árlegi vöxtur gagna í veröldinni knýr á um að gagnaver verði í vaxandi mæli knúin með hreinni orku.