Veftré Print page English

Áætlun Dubai um grænt hagkerfi


Forseti tekur við fyrsta eintaki viðamikillar skýrslu um áætlun stjórnvalda í Dubai um sköpun græns hagkerfis á næstu áratugum. Saeed Al Tayer, yfirmaður orkustofnunar Dubai, afhenti forseta eintakið ásamt Sultan Ahmed Al Jaber, ráðherra í ríkisstjórn Sameinuðu arabísku furstadæmanna. Afhendingin fór fram að loknu ávarpi forseta á World Climate Summit í París. Ákveðið hefur verið að halda næsta haust í Dubai Heimsþing um hagkerfi grænnar orku. Mynd.