Veftré Print page English

Keppel


Forseti heimsækir borpalla- og skipasmíðastöðina Keppel Offshore & Marine sem er helsta fyrirtæki heims á sínu sviði. Að lokinni skoðunarferð um athafnasvæði fyrirtækisins þar sem fjölmargir borpallar og skip voru ýmist til viðgerða eða nýsmíði var rætt um vaxandi áhuga Keppel á umsvifum á Norðurslóðum, bæði varðandi borpalla og skip sem siglt geta gegnum ís. Einnig var fjallað um hugsanlegt samstarf á sviði nýtingar jarðhita til húshitunar og kælingar. Myndir.