Veftré Print page English

Heiðursdoktor við Kookmin háskóla


Forseti er sæmdur heiðursdoktorsnafnbót við hátíðlega athöfn í Kookmin háskólanum í Seúl. Við það tækifæri flutti forseti jafnframt fyrirlestur og skrifað var undir samstarfssamning milli Háskólans í Reykjavík og Kookmin háskóla. Við athöfnina gat rektor háskólans sérstaklega framlags forseta til umhverfisverndar og friðsamlegrar samvinnu þjóða sem og frumkvæðis hans í málefnum Norðurslóða. Fyrrum forsætisráðherra Kóreu, dr. Hong-Koo Lee, flutti einnig ávarp við athöfnina. 

 

Fyrirlestur forseta bar heitið: Iceland’s Clean Energy Economy - Lessons for a Global Transformation. Í fyrirlestri sínum fjallaði forseti um sjálfbæran orkubúskap Íslendinga og þá lærdóma sem aðrar þjóðir gætu dregið af reynslu Íslendinga í þeim efnum. Í kjölfarið svaraði forseti fyrirspurnum nemenda og kennara.

 

Forseti heimsótti í dag, þriðjudaginn 10. nóvember, Heimsskautastofnun Kóreu, KOPRI, sem er öflug vísindastofnun rúmlega tvö hundruð vísindamanna og sérfræðinga. Forystumenn stofnunarinnar gerðu grein fyrir fjölþættum og viðamiklum rannsóknum á náttúru og lífríki á Norðurslóðum og öðrum ísilögðum hlutum veraldar. KOPRI hefur tekið virkan þátt í þingum Hringborðs Norðurslóða - Arctic Circle, frá stofnun þess. Fyrirhugað er að efla enn starfsemi Heimsskautastofnunarinnar á komandi árum.

 

Í kjölfarið heimsótti forseti höfuðstöðvar hins nýja loftslags- og umhverfissjóðs Green Climate Fund, sem stofnaður var með ákvörðun aðildarríkja Sameinuðu þjóðanna í Cancun árið 2010. Græna loftslagssjóðnum er ætlað að leggja fjármuni til verkefna í þróunarríkjum sem tengjast loftslags- og umhverfismálum, ekki síst að styðja ríki til þess að endurskipuleggja orkubúskap sinn í átt til sjálfbærni og aðstoða þau ríki sem helst munu glíma við margvíslegar afleiðingar loftslagsbreytinga. Á fundinum gerði Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra m.a. grein fyrir ákvörðun ríkisstjórnar Íslands um að framlög Íslands til hans verði ein milljón Bandaríkjadala sem dreifast muni á árin 2016-20. Myndir